Tilefni
Erfidrykkjur
Við sjáum um veitingarnar í erfidrykkjunni af alúð, svo þið getið átt rólega stund með fjölskyldu og vinum og minnst ástvinar.
4 matseðlar

Súpuhlaðborð
Lágmark 40 gestir
Viðmiðunarverð 2.990 kr/mann
Bragðmikil mexíkósúpa með nachos, salsa, sýrðum rjóma og osti, borin fram með brauði, pestói, tapenade og smjöri. Notaleg og saðsöm veisla.

Kaffi snittuhlaðborð
Lágmark 40 gestir
Viðmiðunarverð 3.990 kr/mann
Girnilegar kaffisnittur með fjölbreyttu áleggi, meðal annars roastbeef og hangikjöti. Klassískar veitingar sem henta jafnt í kaffiboðið, á fundinn eða í stærri veislur.

Hefðbundið kaffihlaðborð
Lágmark 40 gestir
Viðmiðunarverð 4.990 kr/mann
Hefðbundið kaffihlaðborð með góðri blöndu af ljúffengum brauðréttum og sætum kræsingum. Tilvalið fyrir veislur og notalegar samverustundir.

Þjóðlegt kaffihlaðborð
Viðmiðunarverð 3.990 kr/mann
Þjóðlegt kaffihlaðborð með klassískum íslenskum kræsingum. Kokteilsnittur og flatkökur með hangikjöti ásamt kleinum, pönnukökum með sykri og skúffuköku. Notaleg veisla sem hentar vel þegar fólk kemur saman yfir góðum kaffibolla.
