Tilefni
Fyrirtækjaboð
LUX hefur reynslu af öllum gerðum fyrirtækjaviðburða, frá ráðstefnum og kynningum til jólahlaðborða og starfsmannagleði. Við sníðum matseðilinn að þínum þörfum.
11 matseðlar

Hádegisverðarseðill 3 rétta
Lágmark 20 gestir
Viðmiðunarverð 4.990 kr/mann
Ljúffengar hádegisveitingar fyrir fundi, ráðstefnur og aðra viðburði. Val um tveggja eða þriggja rétta matseðil. Tveir réttir: 4.990 kr. á mann. Þrír réttir: 5.490 kr. á mann.

Carnival lifandi stöðvar
Lágmark 80 gestir
Viðmiðunarverð 12.900 kr/mann
Gerðu veisluna líflega þar sem kokkarnir eru hluti af upplifuninni. Matarstöðvar eru settar upp meðal gesta, þar sem kokkar leggja lokahönd á réttina og framreiða. Gestir flakka á milli stöðva og njóta fjölbreyttra smárétta, rétta af grillinu og sætra rétta úr eftirréttalandi, nítróstöð og nammibar.

7 bita samsettur smáréttaseðill
Viðmiðunarverð 4.900 kr/mann
Matseðillinn er létt máltíð sem hentar vel í stuttar móttökur og seinnipartsveislur. Matseðillinn er 7 tegundir og 7 einingar á mann.

12 bita lúxus smáréttaseðill
Lágmark 30 gestir
Viðmiðunarverð 8.400 kr/mann
Lúxus bitar, spjót og eftirréttir.

Samsettur seðill með 9 spjótum
Viðmiðunarverð 6.300 kr/stk
Glæsilegur 9 spjóta seðill með gæða smáréttum fyrir alls kyns veislur og móttökur. 9 einingar á mann.

Samsettur seðill með 6 spjótum
Viðmiðunarverð 4.500 kr/stk
Glæsilegur 6 spjóta seðill með gæða smáréttum fyrir alls kyns veislur og móttökur.

Stakir smáréttir
Viðmiðunarverð 750 kr/rétt á mann
Veljið úr öllum okkar girnilegu smáréttum: spjótum, taco, mini borgurum, sætum bitum og öllu þar á milli. Miðið við 5–6 bita á mann fyrir léttar veitingar í móttöku eða með drykk, en 10–12 bita ef veitingarnar eiga að koma í stað heillar máltíðar. Magnið fer þó eftir samsetningu réttanna og lengd viðburðarins.

Morgunverðarhlaðborð
Lágmark 60 gestir
Viðmiðunarverð 4.490 kr/mann
Ríkulegt morgunverðarhlaðborð með nýbökuðu brauði, croissant, fjölbreyttu áleggi og reyktum laxi. Heitir morgunverðarréttir, skyr með granóla og berjum, ferskir ávextir og sætt bakkelsi gera morgunstundina enn betri.

Léttur morgunfundur
Lágmark 60 gestir
Viðmiðunarverð 2.490 kr/mann
Létt og gómsæt byrjun á fundardeginum með mini croissant, skyri með granóla og berjum, kanilsnúði og ferskum ávöxtum. Kaffi, te og vatn fylgja með.

Klassískur morgunfundur
Lágmark 60 gestir
Viðmiðunarverð 3.490 kr/mann
Góðar morgunveitingar með rúnstykkjum og fjölbreyttu áleggi, skyri með granóla og berjum, kanilsnúðum, hjónabandssælu og ferskum ávöxtum. Tilvalið fyrir morgunfundinn eða fræðsludaginn.

Charcuterie
Lágmark 30 gestir
Viðmiðunarverð 3.290 kr/mann
Hentar vel í móttökur og veislur eða sem hluti af fjölbreyttu borði með öðrum smáréttum og plöttum.
-1-1600x900.jpg)