Tilefni

Fundaveitingar og ráðstefnuseðlar

10 matseðlar

Carpaccio

Hádegisverðarseðill 3 rétta

Lágmark 20 gestir

Viðmiðunarverð 4.990 kr/mann

Ljúffengar hádegisveitingar fyrir fundi, ráðstefnur og aðra viðburði. Val um tveggja eða þriggja rétta matseðil. Tveir réttir: 4.990 kr. á mann. Þrír réttir: 5.490 kr. á mann.

kaffi snittur

Kaffi snittuhlaðborð

Lágmark 40 gestir

Viðmiðunarverð 3.990 kr/mann

Girnilegar kaffisnittur með fjölbreyttu áleggi, meðal annars roastbeef og hangikjöti. Klassískar veitingar sem henta jafnt í kaffiboðið, á fundinn eða í stærri veislur.

kaka

Þjóðlegt kaffihlaðborð

Viðmiðunarverð 3.990 kr/mann

Þjóðlegt kaffihlaðborð með klassískum íslenskum kræsingum. Kokteilsnittur og flatkökur með hangikjöti ásamt kleinum, pönnukökum með sykri og skúffuköku. Notaleg veisla sem hentar vel þegar fólk kemur saman yfir góðum kaffibolla.

taco

Stakir smáréttir

Viðmiðunarverð 750 kr/rétt á mann

Veljið úr öllum okkar girnilegu smáréttum: spjótum, taco, mini borgurum, sætum bitum og öllu þar á milli. Miðið við 5–6 bita á mann fyrir léttar veitingar í móttöku eða með drykk, en 10–12 bita ef veitingarnar eiga að koma í stað heillar máltíðar. Magnið fer þó eftir samsetningu réttanna og lengd viðburðarins.

snudar

Morgunverðarhlaðborð

Lágmark 60 gestir

Viðmiðunarverð 4.490 kr/mann

Ríkulegt morgunverðarhlaðborð með nýbökuðu brauði, croissant, fjölbreyttu áleggi og reyktum laxi. Heitir morgunverðarréttir, skyr með granóla og berjum, ferskir ávextir og sætt bakkelsi gera morgunstundina enn betri.

croissant

Léttur morgunfundur

Lágmark 60 gestir

Viðmiðunarverð 2.490 kr/mann

Létt og gómsæt byrjun á fundardeginum með mini croissant, skyri með granóla og berjum, kanilsnúði og ferskum ávöxtum. Kaffi, te og vatn fylgja með.

avextir

Klassískur morgunfundur

Lágmark 60 gestir

Viðmiðunarverð 3.490 kr/mann

Góðar morgunveitingar með rúnstykkjum og fjölbreyttu áleggi, skyri með granóla og berjum, kanilsnúðum, hjónabandssælu og ferskum ávöxtum. Tilvalið fyrir morgunfundinn eða fræðsludaginn.

Ostar 2

Charcuterie

Lágmark 30 gestir

Viðmiðunarverð 3.290 kr/mann

Hentar vel í móttökur og veislur eða sem hluti af fjölbreyttu borði með öðrum smáréttum og plöttum.

ostar3

Ostaúrval

Lágmark 30 gestir

Viðmiðunarverð 2.790 kr/mann

Tilvalið sem léttar veitingar, með fordrykk eða sem hluti af stærra veisluborði.

ostar

Osta & charcuterie platti

Lágmark 30 gestir

Viðmiðunarverð 2.990 kr/mann

Góður kostur á veisluborðið, í móttökur eða þegar boðið er upp á fjölbreytt úrval smárétta.